
Óskandi
Óskandi var stofnaður vorið 2019 af Guðrúnu Óskarsdóttur. Skólinn er sjálfstæð eining undir Dansgarðinum og er í samstarfi við Klassíska listdansskólann. Skólinn bar nafnið Ballettskóli Guðbjargar Björgvins í 37 ár, eða frá 1982 - 2019. Honum var stjórnað af Guðbjörgu Björgvins til vorsins 2018 og svo Dansgarðinum - Klassíska listdansskólanum 2018 - 2019.
Óskandi býður upp á fjölbreytt dansnám þar sem markmið skólans er að bjóða upp á faglegt, þroskandi og uppbyggjandi umhverfi; opna hugann fyrir sköpun, nýrri hugsun, auka félagsfærni, hreyfifærni og sjálfstraust, þjálfa færni við að greina tilfinningar og gagnrýna hugsun. Stuðst er við kennslufræði Anne Green Gilbert og er grunnnámið kennt samkvæmt aðalnámskrá.
Nafnið Óskandi samanstendur af ósk og andi. Ósk er dregið af því að óska sér en einnig vísun í föðurnafnið Óskarsdóttir. Andi er þýðing á „spirit“ og vísun i andrúmsloftið, þar sem eitt af aðalmarkmiðum skólans er að bjóða upp á uppbyggilegt, jákvætt og notalegt andrúmsloft þar sem allir fái tækifæri til að vera þeir sjálfir.

Námskeið og tímar í boði
Hafa samband
Ef einhverjar spurningar vakna er best að hafa samband við okkur í gegnum netfangið oskandi@oskandi.is eða á Facebook spjallinu.
Óskandi er til húsa í kjallaranum á Eiðistorgi, undir verslun Hagkaupa. Gengið er inn í gegnum Eiðistorg.